Nýr meirihluti í Kópavogi

Gengið hefur verið frá samkomulagi Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Lista Kópavogsbúa um myndun meirihluta í bænum. Þetta staðfestir Ómar Stefánsson bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í samtali við fréttastofu.
Gengið var frá málefnasamningi flokkanna seint í gær og búið er að semja um skiptingu embætta. Þá hefur verið ákveðið hver verður bæjarstjóri en Ómar vildi ekki veita frekari upplýsingar, fyrr en eftir að samkomulagið hefur verið kynnt flokkunum. Aðeins á eftir að ganga formlega frá samþykkt allra bæjarfulltrúa flokkanna sem standa að samkomulaginu, sem þýðir að þeir eiga eftir að undirrita það.
Greint verður frá niðurstöðu flokkanna um samkomulagið á fréttamannafundi síðdegis í dag.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

Vonast eftir nýjum meirihluta í dag




