Nýr bæjarstjóri vill lækka skatta

Ármann Kr. Ólafsson, (D) og Rannveig Ásgeirsdóttir, (Y) bæjarfulltrúar í Kópavogi.

Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Kópavogs, verður nýr bæjarstjóri í Kópavogi. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur kynna nú málefnasamning nýs meirihluta fyrir baklandi sínu.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Lista Kópavogsbúa tekur við völdum í Kópavogi 14. febrúar. Ármanna Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðismanna verður bæjarstjóri. 

 Gengið var frá málefnasamningi flokkanna seint í gær og búið er að semja um skiptingu embætta. Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Kópavogs, verður nýr bæjarstjóri í Kópavogi. Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Y-Lista Kópavogsbúa, verður formaður bæjarráðs og Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, verður varaformaður. Margrét Björnsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, verður forseti bæjarstjórnar. 

Rannveig, sem í aðdraganda kosninga vildi faglega ráðinn, ópólítískan bæjarstjóra og siðbót í stjórnmálum, segist ekki svíkja kjósendur sína með því að ganga inn í meirihluta samstarf með meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Það hafi aldrei verið stefnumál Y-listans að fella þessa tvo flokka. Þau hafi vitað fullvel sem lítið framboð, fram komið skömmu fyrir kosningar, að þeim myndi aldrei takast að verða í meirihluta nema í samstarfi við aðra flokka. Hverjir það yrðu var ekki vitað. 

Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn fóru á fund með sínu baklandi á sjötta tímanum til að bera undir þá málefnasamning flokkanna þriggja sem ekki hefur verið gerður opinber. Ármann segir mikilvægasta verkefni nýs meirihluta af vinda ofan skattahækkunum fyrri meirihluta. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Stjórnmál

Tilkynna um bilaða upptöku