Ný samgönguáætlun kynnt

Mikil áherslubreyting verður á samgönguáætlun sem innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í dag. Með nýrri nálgun verður lögð minni áhersla á að skipta framkvæmdafé milli kjördæma og því ætti að draga úr kjördæmapoti.
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, kynnti samgönguáætlun til næstu tólf ára á ríkisstjórnarfundi í dag. Hann segir mikla áherslubreytingu fólgna í áætluninni og að þeirri breytingu sé ætlað að bæta vinnubrögð.
„Fram til þessa hafa menn deilt vegafénu upp á kjördæmin og menn hafa komið að þessum málum sem kjördæmaþingmenn. Núna er hugsunin sú að horfa á þetta með öðrum hætti. Við horfum til samstarfs við sveitarfélögin í einstökum lansdhlutum að sönnu. Við erum að vefa þetta saman við heildarstefnumótun til eflingar atvinnulífs og byggða. Þannig að við horfum til landshlutanna en ekki á grundvelli kjördæmanna.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














