Ný framboð hafa áhrif til vinstri

Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri Grænna.

Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri Grænna, segir að nýju framboðin tvö, Samstaða og Björt framtíð muni hafa talsverð áhrif á vinstri væng stjórnmálanna. Hátt hlutfall óákveðinna sýni að kjósendur séu enn leitandi eftir hrunið.

Samstaða, framboð Lilju Mósesdóttur og félaga var kynnt í vikunni og nýverið var Björt framtíð, framboð Guðmundar Steingrímssonar og félaga kynnt formlega. Bent hefur verið á að þessum nýju flokkum hafi ef til vill ekki tekist að svara kalli og þörfum hinna óákveðnu. Að minnsta kosti ekki enn sem komið er, ef marka má nýjustu kannanir sem sýna að allt að helmingur kjósenda tekur ekki afstöðu með neinum flokki. Katrín Jakobsdóttir segir ljóst að nýju flokkarnir tveir eigi eftir að hafa mest áhrif á vinstri væng stjórnmálanna og þar eigi eftir að sjást breytingar. "Okkar fylgi hefur sveiflast upp og niður á þessum tólf árum sem við höfum verið til, þannig að ég er eiginlega löngu hætt að hafa áhyggjur af skoðanakönnunum." Katrín segir að hún hefði búist við að Björt framtíð hefði fengið meira fylgi, en á móti komi að Samstaða sé að taka til sín þá óákveðnu. "Það eru auðvitað mjög margir óákveðnir þannig að við eigum eftir að sjá fólk gera upp hug sinn. Ég held líka að þetta sýni að það hefur verið almenn umræða allt frá hruni um traust á stjórnmálum og fólk er enn svolítið leitandi í stjórnmálum samtímans."

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Stjórnmál

Tilkynna um bilaða upptöku