Nota Ísland sem stökkpall

Á athafnasvæði Eimskips.

Forstjóri Útlendingastofnunar segir að hælisleitendur noti Ísland sem eins konar stökkpall í tilraunum sínum til að komast vestur um haf. Hún segir eftirlit á hafnarsvæðum hér á landi ekki eins gott og í nágrannalöndunum.

Tveir laumufarþegar voru handteknir aðfaranótt föstudags í Sundahöfn þar sem þeir ætluðu að koma sér um borð í Reykjafoss, skip Eimskips, sem var á leið til Kanada. Mennirnir eru hælisleitendur hér á landi, annar frá Súdan og hinn frá Alsír. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þeir gera tilraun til að lauma sér um borð í skip hér á landi. Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, segir að hælisleitendur grípi til slíkra örþrifaráða vegna þess að málsmeðferð þeirra tekur svo langan tíma. Hún segir að það taki rúmlega ár að afgreiða hverja umsókn, og að 60 til 70 slíkar umsóknir bíði málsmeðferðar. Ekki sé hægt að auka hraðann vegna fjárskorts.

„Útlendingastofnun hefur til margra ára liðið mikinn fjárskort og hann hefur nú ekki skánað eftir kreppuna. Við höfum lengi bent á að vanlíðan þeirra sem eru í þessari meðferð helst í hendur við málsmeðferðarhraðann og höfum kallað eftir auknu fjármagni ítrekað. Það því miður kemur ekki,“ segir Kristín. Hún segir að hælisleitendur noti Ísland sem eins konar stökkpall á leið sinni vestur um haf.

„Það er vegna þess að við erum útstöð Schengen svæðisins til Bandaríkjanna og Kanada og þessi tvö ríki eru fyrirheitna landið fyrir hælisleitendur og hafa verið það mjög lengi.“

Þá segir Kristín að mjög strangt eftirlit sé með hafnarsvæðum í nágrannalöndunum mun strangara eftirlit en hér. „Þetta eru tollasvæði og þá hljótum við að gera ráð fyrir að eftirlitið sé í samræmi við það. Það eiga engir ókunnugir að vera inni á svæðinu.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku