Nokkrir í vanda á Holtavörðuheiði

Safnmynd.

Nokkrir ökumenn hafa lent í vandræðum á Holtavörðuheiði í kvöld. Þar er mikil umferð og fljúgandi hálka að sögn lögreglu. Einn bíll valt norðarlega á heiðinni og skemmdist nokkuð en engin meiðsl urðu á fólki. Þá keyrðu tveir bílar út af veginum, annar skemmdist lítillega en hinn ekki.

Lögregla biður fólk að fara varlega á þessum slóðum, hálka er á allri heiðinni og á leiðinni áfram norður í land.

Þá rann bíll með hestakerru til í hálku við Grundartanga. Ökumaðurinn var fluttur á Sjúkrahúsið á Akranesi til skoðunar. Hestarnir urðu fyrir einhverju hnjaski en óvíst er hversu mikið það er.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku