NHL stjarna fædd?

Þó Oliver Wahlstrom sé ekki nema 11 ára er hann þegar farinn að vekja athygli fyrir snilli sína á svellinu og með pökkinn.

Árið 2009, þegar hann var aðeins 9 ára tók hann þátt í vítakeppni barna 10 ára og yngri og vakti úrslitamark hans mikla athygli í vefheimum. Tveimur árum síðar vakti hann ekki minni athygli með ekki síðra sirkusmarki.

Oliver er sonur Joakim Wahlstrom, fyrrum atvinnumanns í íshokkí en hann segir að strákurinn eigi enn bragð upp í erminni sem sé mun flóknara en þessi tvö, hann sé bara ekki búinn að finna nafn á það enn.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Íþróttir

Tilkynna um bilaða upptöku