Prenta frétt Senda frétt

Nauteyri ekki á útsölu

Ýmsir íbúar við Ísafjarðardjúp og í Strandabyggð hafa lýst yfir áhyggjum sínum af því að með fyrirhugaðri sölu á jörðinni Nauteyri sé verið að verðfella jarðir og aðrar fasteignir í sveitarfélaginu. Nauteyri hefur verið á sölu síðan í ársbyrjun 2008 en Hraðfrystihúsið Gunnvör sem rekur fiskeldi á jörðinni gerð í síðasta mánuði tilboð í jörðina sem hljóðaði upp á 15 milljónir króna. Því tilboði var hafnað af sveitarstjórn Strandabyggðar og gert gagntilboð. Ekki fæst uppgefið upp á hvað gagngtilboðið hljóðaði en því var hafnað af Gunnvöru. Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri segir að ekki standi til að vera með neina útsölu á eignum sveitarfélagsins og því sé sú umræða sem skapast hefur nokkurs konar stormur í vatnsglasi.

 
        

frettir@ruv.is

Vestfirðir


Senda á Facebook

19. mars 2010

Streymiþjónusta