Naomi Watts leikur Díönu

Naomi Watts. Mynd:Getty Images

Leikkonan Naomi Watts mun leika Díönu prinsessu í kvikmynd sem gerð verður um síðustu æviár hennar. Framleiðendur segja að í myndinni verði lögð áhersla á það tímabil þegar Díana var hvað hamingjusömust, tveimur árum fyrir sviplegt andlát hennar.

Leikstjóri myndarinnar verður Oliver Hirschbiegel, sem er hvað þekktastur fyrir myndina Untergang, sem fjallaði um síðustu daga Hitlers. Naomi Watts segir það sannan heiður að fá að leika slíka goðsögn, konuna sem í dag sé kölluð prinsessa fólksins. Framleiðendur myndarinnar hafa ekkert gefið uppi um hvort sambandi Díönu við Dodi Fayed, verði gerð skil í myndinni, en það hófst stuttu fyrir dauða hennar. Þau létust bæði í bílslysi í París árið 1997.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku