Nær helmingur kjósenda óráðinn

Rúnar Vilhjálmsson prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands segir að könnun Fréttablaðsins og Stövðar tvö í dag á fylgi stjórn málaflokka staðfesti niðurstöður úr fyrri könnunum. Þær sýni að mun fleiri séu óákveðnir en þekktist fyrir nokkrum árum.

Vafasamt sé hins vegar að spá fyrir um kosningaúrslit á grundvelli könnunarinnar.  Einungis sé byggt á svörum um 53%, sem tóku afstöðu. Vegna þess hve margir segist óákveðnir sé hæpið að varpa þessum niðurstöðum og hlutfallstölum í þingsæti. Rúnar segir slíkt segja harla lítið. Megin niðurstaðan er hversu margir kjósendur séu ekki reiðubúnir að taka afstöðu til framboðanna sem í boði eru að dómi hans. 

Það sé líka áhugavert hvað kjósendur séu jákvæðir í garð nýrra framboða á borð við Samstöðu. Sá stuðningur geti falist í jákvæðri afstöðu til persóna eða stefnumála, sem enn séu þó nokkuð óljós og svo sýnir hann líka óánægju með hefðbundnu framboðin segir Rúnar. 

Rætt verður við Rúnar í Speglinum eftir fréttir.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Stjórnmál

Tilkynna um bilaða upptöku