Myndi mæta í opna rannsókn

Jón Ásgeir Jóhannesson, mynd úr safni.
Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverand eigandi Baugs segir að nú sé kominn tími á opnari vinnubrögð og umræðu um uppgjör hrunsins. Hann segist myndu mæta fyrir opinni rannsóknarnefnd ef fjallað væri um mál fyrir opnum tjöldum.
Lífeyrissjóðirnir töpuðu 77 milljörðum á Baugsveldi Jóns Ásgeirs samkvæmt úttektarskýrslunni sem birt var á föstudaginn.Jón Ásgeir sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann hafnar því að hann beri ábyrgð á tapi lífeyrissjóðanna á Glitni banka hf. Hann gagnrýnir líka vinnubrögð við gerð skýrslunnar, þau séu söm og voru við vinnu rannsóknarnefndar Alþingis.
„Maður fékk ekkert að svara spurningum frá nefndinni. Maður þurfti sjálfur að mæta með þau gögn sem maður vildi koma að en ég var aldrei beðinn að mæta og gefa skýrslu. Hins vegar voru menn með stór orð í minn garð þegar hún kom út og það er sama með þessa skýrslu.“
Jón telur tíma kominn á opnari vinnubrögð í þessum málum. Hann neitar því að hann vilji sópa málum til hliðar, tími sé kominn á opna rannsóknarnefnd þar sem starfað sé fyrir opnum tjöldum.
„Þar sem menn séu bara kallaðir fyrir og tjái sig í beinni útsendingu.“
Aðspurður um hvort hann væri tilbúinn að opna bækur sinna fyrirtækja segist Jón myndu verða fyrstur manna til að mæta í yfirheyrslur hjá rannsóknarnefnd á borð við þá sem hann vísaði til.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






