Mun fleiri vilja Hönnu Birnu
Fyrst birt: 15.09.2011 12:26, Síðast uppfært: 15.09.2011 13:50
Mun fleiri vilja sjá Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem formann Sjálfstæðisflokksins en Bjarna Benediktsson, að því er fram kemur í nýrri netkönnun MMR. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust tæplega 59% vilja sjá Hönnu Birnu sem formann, en rúmlega 13% vildu að Bjarni yrði áfram formaður.
Ef aðeins er horft til kjósenda Sjálfstæðisflokksins styðja rúmlega 66% Hönnu Birnu en rúmlega 26% Bjarna.
893 tóku þátt í könnuininni, sem var netkönnun, og var svarhlutfall ríflega 81%.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku






