MR og MH áfram í Gettu betur

Menntaskólinn í Reykjavík og Menntaskólinn í Hamrahlíð komust áfram í Gettu Betur, spurningakeppni framhaldsskólanna í kvöld.

 Menntaskólinn í Reykjavík vann Menntaskólann í Kópavogi 23-7 og Menntaskólinn við Hamrahlíð sigraði Menntaskólann á Egilsstöðum 16-14. Dregið var um hverjir skyldu mætast í sjónvarpinu í næstu umferð og fór það svo að í fyrstu viðureign í Sjónvarpinu, föstudaginn

24. febrúar keppa Fjölbrautaskóli Suðurlands og Verslunarskóli Íslands..

2. mars verða það Menntaskólinn í Reykjavík og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ.

9. mars keppa Menntaskólinn við Hamrahlíð og Borgarholtsskóli 

16. mars keppa Menntaskólinn á Akureyri og Kvennaskólinn í Reykjavík. 

Undanúrslit verða svo fimmtudaginn 22. mars og föstudaginn 23. mars.

Úrslit verða föstudaginn 30. mars.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku