Minna joð í norskri mjólk

Norskir kálfar. Mynd: Shutterstock

Joðinnihald í norskum mjólkurvörum hefur lækkað um hátt í fjörutíu prósent frá árinu 2000. Tine, stærsti mjólkurvöruframleiðandi í Noregi hefur bent heilbrigðisyfirvöldum og manneldisráði landsins á þetta.

 Norðmenn fá um helming af því joði sem þeir innbyrða úr mjólkurvörum. Skortur á því getur leitt til truflana á efnaskiptum og stækkunar á skjaldkirtli. Ekki er fullljóst af hverju minna joð er í mjólkinni nú en hugsanlega má rekja það til hærra hluttfalls repju í kraftfóðri. Manneldisráðið staðfestir að ýmislegt bendi til þess að hluti Norðmanna, fái ekki nægilega mikið af joði, sérstaklega fólk sem neytir lítils af fiski og mjólkurvörum, því sé full ástæða til að fylgjast með joðinnihaldi mjólkur. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent, Neytendamál

Tilkynna um bilaða upptöku