Prenta frétt

Senda frétt

Metatvinnuleysi í síðasta mánuði

Atvinnuleysi hefur aldrei mælst meira en í febrúar, 9,3 prósent. Seðlabankinn spáir því að atvinnuleysi aukist og nái hámarki um mitt ár og verði um tíu af hundraði. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, er bjartsýnni og telur að hámarkinu hafi verið náð. Atvinnuleysistölurnar í febrúar séu þó ekki góðar.

Greinilegt sé að hreyfing sé á vinnumarkaðnum. Í febrúar hafi margir fengið vinnu og farið af atvinnuleysisbótum en aðrir farið á bætur í staðinn. Verst sé ástandið í byggingargreinum og mannvirkjagerð sem séu í lægð yfir vetrarmánuðina.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

29. júlí 2010

Streymiþjónusta