Meiri sparnaður var mögulegur

Stöðugt hefur verið skorið niður á Landspítalanum frá árinu tvö þúsund og sjö. Þegar hefur verið hagrætt um tuttugu og þrjú prósent síðan þá og með 630 milljóna króna niðurskurði á næsta ári hefur rekstarkostnaður spítalans minnkað um 9,6 milljarða króna síðan.

Á starfsmannafundi í morgun kom fram að áhrif þessa niðurskurðar eru meðal annars þau að starfsmönnum hefur fækkað um tæplega 600 dagvinnustöðugildum hefur fækkað um tæplega 330 og sjúkrarúmum hefur fækkað um níutíu.


Aðgerðirnar núna felast í að loka St. Jósefsspítala, hagræða á geðsviði meðal annars með því að flytja starfsemi Sogns á Klepp og sameina líknardeildir Landakots. Við þetta sparast 284. Afgangurinn sparast með vörustjórnun, lækkun lyfjakostnaðar, breyttu skipuriti og hagræðingu á rekstrar- og fjármálasviði og skjalavistun, ásamt öðrum smáverkum. Forstjóri spítalans segir margra mánaða athugun að baki þessum aðgerðum.

Faglega réttust leið
„Þetta er sú leið sem hefur minnst rask með sér og er faglega réttust, ekki út frá byggðasjónarmiði heldur faglega réttust,“ sagði Björn Zoëga forstjóri Landspítalans.

Björn segir að þó hafi verið hægt að spara meira í almennum aðgerðum en haldið var í upphafi - það hafi aðeins komið í ljós á síðustu vikum. Nú skipti hins vegar máli að ekki verði meiri niðurskurður. „Mikið af aðgerðum sem við gætum farið í gæti sparað pening í eitt ár eða tvö ár og síðan valdið kostnaði. Þannig að við þurfum að fá skýrari skilaboð um hvernig fjárlögin verða til lengri tíma fyrir okkur,“ sagði Björn að lokum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka