Matthías sendi Víking í 1. deild
Fyrst birt: 15.09.2011 20:47, Síðast uppfært: 16.09.2011 08:20
Valsmenn báru í kvöld sigurorð af Víkingi Reykjavík í efstu deild karla í knattspyrnu, 1:0. Matthías Guðmundsson skoraði eina mark leiksins.
Með úrslitunum er ljóst að Víkingur er fallinn um deild, en liðið hefur aðeins 9 stig í neðsta sæti deildarinnar þegar þremur umferðum er ólokið. Valur er hins vegar í 4. sæti með 32 stig.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku





