Matthías bjargaði stigi fyrir FH
Matthías Vilhjálmsson fyrirliði FH bjargaði stigi fyrir sitt lið í kvöld þegar hann skoraði jöfnunarmark FH gegn Fram á lokamínútu leiksins í 19. umferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu í kvöld. Orri Gunnarsson, 19 ára hafði komið Fram yfir þremur mínútum fyrr, en mark Orra dugði Fram ekki til sigurs.
Bæði lið sjá væntanlega mikið eftir töpuðu stigunum, því FH hefði getað gert atlögu að því að blanda sér í toppbaráttuna í lokin, og Fram er í næstneðsta sæti deildarinnar og berst fyrir lífi sínu.
Fram hefur 15 stig í 11. sæti þegar 3 umferðir eru eftir, 5 stigum á eftir Grindavík sem er sæti ofar og 6 stigum á eftir Keflavík, Breiðablik og Þór sem eru í 7.-9. sæti. Fram á Grindavík, Keflavík og Víking í síðustu leikjunum.
FH er í 3. sæti deildarinnar sem fyrr og hefur nú 35 stig.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku





