Markaleikur á Stamford Bridge

Wayne Rooney skoraði tvö mörk úr vítaspyrnum í dag
Tveir leikir voru í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Newcastle vann Aston Villa 2-1 og Chelsea og Manchester United gerðu 3-3 jafntefli á Stamford Bridge í stórleik helgarinnar.
Jonny Evans, leikmaður Manchester United, varð fyrir því óláni að skora í eigið mark á 36. mínútu og Chelsea því með forystu í hálfleik. Liðið komst í 3-0 á fyrsta korterinu í síðari hálfleik með mörkum frá Juan Mata og David Luiz og því komið í vænlega stöðu. Þá var komið að Wayne Rooney sem skoraði tvö mörk úr tveimur vítaspyrnum á tveggja mínútna kafla, staðan orðin 3-2 og 20 mínútur eftir af leiknum. Það var svo Javier Hernandez sem tryggði Manchester United eitt stig með marki á rúmum fimm mínútum fyrir leikslok.
Manchester United er nú í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Manchester City sem vann í gær en Chelsea er í fjórða sæti.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku





