Markaður fyrir grásleppu í Kína

Nýr markaður fyrir grásleppu hefur skapast í Kína, þar sem hún er seld sem lostæti á veitingastöðum. Útlit er fyrir að nokkur þúsund tonn verði flutt þangað í ár. Þessum fiski var áður hent að mestu leyti. Í ár gæti hann búið til um það bil milljarð króna í gjaldeyristekjur.
Grásleppan hefur lengi verið veidd hér við land, en aðallega vegna hrognanna. Fisknum sjálfum var áður hent fyrir borð. Nú má það ekki lengur. Undanfarin ár hafa menn leitað að markaði fyrir þennan fisk og hann er fundinn. Í Kína.
Ormur Arnarson, framkvæmdastjóri útflutningsfyrirtækisins Trotons, segir að útflutningurinn hafi byrjað í smáum stíl. Fluttir voru úr 3 gámar eða 150 tonn. Á þessu ári gæti útflutningurinn orðið 3.000 tonn. Það er hveljan af fiskinum sem þykir lostæti og er borin fram á veitingahúsum, til dæmis í Peking og Shanghai. Ormur segir að það hafi ekki verið fyrr en í ljós kom að Kínverjar vildu borða hveljuna sem markaðurinn varð að raunveruleika.
Það má því segja að markaðurinn hafi verið búinn til í Kína. Þar þurfti að kenna kokkum að reiða fram hveljuna og gera hana girnilega. Angie Yu segir að hún hafi raunar ekki haft kínverskt nafn, þannig að það var bara búið til – sægúrka.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku





