Manngerðir skjálftar upp á 4

Á annað hundrað skjálftar hafa orðið nálægt Hellisheiðarvirkjun í morgun, þeir stærstu upp á um fjóra. Skjálftarnir hafa fundist víða á Suður og Vesturlandi, frá Akranesi, austur að Hellu.

Skjálftavirknin er vegna niðurdælingar vatns frá Hellisheiðarvirkjun. Orkumálastjóri telur ekki ástæðu til að hætta niðurdælingu vegna skjálftavirkni.

Þessi hrina hófst um tvöleytið í nótt, en fór af alvöru af stað um klukkan níu í morgun. Þrjár mínútur yfir níu kom snarpur kippur, fjórir að stærð, og annar álíka klukkan fjórtán mínútur í tíu. Þessir skjálftar fundust greinilega á Akranesi, höfuðborgarsvæðinu, og allt austur á Hellu. Skjálftanir eru manngerðir - komnir til eftir að starfsmenn Orkuveitunnar hófu að dæla affallsvatni frá Hellisheiðarvirkjun niður í borholur á svæðínu. Skjálftarnir í morgun eru þeir snörpustu sem orðið hafa síðan virknin hófst snemma í september - og þeir hafa vakið óhug íbúa, til dæmis í Hveragerði. Orkustofnun er að ganga frá skýrslu eða minnisblaði um þessa skjálftavirkni.

„Okkar niðurstaða er sú að þessir skjálftar sem hafa orðið finnast vissulega í byggð en það er ekki reynslan að þeir valdi skemmdum. Þó það sé ekki hægt að útiloka það í einstökum tilvikum er ekki sérstök ástæða til að hafa áhyggjur af því í þessum skjálftum,“ segir Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri.

Jarðfræðingar telja að skjálftar á Hengilssvæðinu verði ekki stærri en sex, vegna þykktar jarðskorpunnar þarna og styrks bergsins - því sé ekki hætta á ferðum. Guðni viðurkennir hins vegar að óvissa sé um framhaldið, og hvort niðurdæling seinki eða flýti stórum skjálftum. Hann segir ekki ástæðu til að hætta niðurdælingu á Hellisheiði, en segir að Orkuveitan hefði mátt standa sig betur í að kynna fyrir íbúum á svæðinu hvað gæti gerst, þegar þessi dæling hófst. „Það hefur auðvitað verið skrifað um þetta en ég held að það hefði verið hægt að gera með skilmerkari hætti og tryggja að þær upplýsingar bærust til íbúa, til dæmis í Hveragerði.“

„Ég held það sé afskaplega vægt til orða tekið. Íbúar í Hveragerði eru mjög ósáttir við þessar starfsaðferðir Orkuveitunnar. Það er alveg ljóst að það verður ekki búið við manngerða jarðskjálfta upp á fjóra á Richter,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði. Hún segir þetta sérstaklega eiga við ef íbúar mættu eiga von á jarðskjálftum upp á allt að 5 til 6.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku