Malí vann bronsið í Afríkukeppninni

Leikmenn Malí bronsverðlaunahafar í Afríkukeppninni 2012

Malí sigraði Gana í leik um þriðja sæti í Afríkukeppninni í knattspyrnu í gær. Áður hafði Malí tapað fyrir Fílabeinsströndinni í undanúrslitum keppninnar og Gana fyrir Sambíu.

Cheick Diabaté, leikmaður franska liðsins Bordeaux, kom Malí í 1-0 eftir rúmlega tuttugu mínútna leik og var staðan þannig í leikhléi. Diabaté skoraði aftur þegar um tíu mínútur voru til leiksloka og gulltryggði 2-0 sigur Malí.

Þetta er besti árangur Malí í keppninni í 40 ár eða síðan liðið hafnaði í öðru sæti 1972.

Fílabeinsströndin og Sambía mætast í úrslitaleik um Afríkumeistaratitilinn í dag.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku