Malí og Ghana í undanúrslit
Fyrst birt: 05.02.2012 23:18, Síðast uppfært: 05.02.2012 23:18

Malí er komið áfram í undanúrslit Afríkukeppninnar í knattspyrnu
Malí og Ghana tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Afríkukeppninnar í knattspyrnu.
Staðan í leik Malí og Gabon var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma og því var framlengt en hvorugu liði tókst að gera út um leikinn svo grýpa þurfti til vítaspyrnukeppni. Lið Malí skoraði úr fimm vítum gegn fjórum vítum Gabon og Malí því komið áfram í undanúrslitin þar sem liðið mætir Sambíu.
Í hinni viðureign dagsins sigraði Ghana lið Túnis 2-1 en staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma svo framlengja þurfti leikinn til þess að knýja fram úrslit. Lið Ghana reyndist sterkara í framlengingunni og hafði að lokum sigur. Ghana mætir Fílabeinsströndinni í undanúrslitum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku





