Í ákæru segir að fólkið hafi ruðst inn í Alþingishúsið og upp á þingpalla þann 8. desember 2008. Fyrri ákæra sem þingfest var 20. janúar var dregin til baka þar sem Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari lýsti sig vanhæfan til að sækja málið vegna vensla við einn þingvörðinn.
Lára V. Júlíusdóttir, settur ríkissaksóknari, sækir málið nú. Ákæran er svo til samhljóma þeirri fyrri. Skaðabótakrafa eins þingvarðarins hefur þó hækkað um 300 þúsund krónur og er nú 877 þúsund krónur. Mótmælendurnir eru ákærðir fyrir brot gegn 100. grein hegningarlaganna. Þar segir að hver sá er ræðst á Alþingi, svo að því eða sjálfræði þess, skuli sæta fangelsi ekki skemur en eitt ár.
frettir@ruv.is