Makedóníumenn í fimmta sæti
Fyrst birt: 27.01.2012 16:17, Síðast uppfært: 27.01.2012 16:19

Úr leik Þýskalands og Makedóníu í riðlakeppninni
Makedóníumenn tryggðu sér rétt í þessu fimmta sætið á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu með dramatískum eins marks sigri á Slóvenum 28-27. Fimmta sætið gefur Makedóníumönnum rétt á því að leika í umspili fyrir Ólympíuleikana í vor.
Kiril Lazarov skoraði átta mörk fyrir Makedóníu í leiknum og setti þar með nýtt markamet í lokakeppni Evrópumóts en hann skoraði alls 61 mark á mótinu. Gamla metið var í eigu Ólafs Stefánssonar sem skoraði 58 mörk á Evrópumótinu árið 2002.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







