Magnað myrkur í Gerðubergi

Heimsdagur barna er haldinn í Gerðubergi og Miðbergi í Breiðholti í dag. Þar verður börnum og fjölskyldum þeirra boðið að taka þátt í fjölbreyttum listasmiðjum.

Þema Heimsdagsins er að þessu sinni Magnað myrkur og í boði er danssmiðja, búningagerð, hljóðfæragerð auk þess sem hægt verður að fara í gegnum hrollvekjuhús, útbúa draum í dós nú eða reynt að fanga drauga á ljósmynd. Aðgangur er ókeypis.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Menning

Tilkynna um bilaða upptöku