Lýst eftir Birnu Dögg

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Birnu Dögg Gunnarsdóttur, 14 ára, til heimilis að Heiðarhvammi í Reykjanesbæ. Síðast er vitað um ferðir Birnu Daggar við Kringluna í Reykjavík um miðjan dag í gær. Birna Dögg er 164 sentimetrar á hæð og grannvaxin. Hún er með dökkt sítt hár og blá augu.

Þeir sem hafa orðið varir við Birnu Dögg eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent

Tilkynna um bilaða upptöku