Lokunum mótmælt á Akranesi
Fyrst birt: 12.01.2012 22:23, Síðast uppfært: 12.01.2012 22:40

Frá Akranesi
Sjúkraliðar á Vesurlandi mótmæla harðlega fyrirhugaðri lokun öldrunardeildar sjúkarhússins á Akranesi. Fjölmenni er á opnum fundi sem nú stendur yfir á Akranesi um málefni sjúkrahússins.
Um þrjátíu starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Vesturlands missa vinnuna þegar E deild sjúkrahússins á Akranesi verður lokað þann fyrsta júní.
Á deildinni er rými fyrir fjórtán sjúklinga. Vesturlandsdeild sjúkraliðafélags Íslands boðaði til fundarins á Akranesi í kvöld en félagsmenn eru afar ósáttir við lokun deildarinn og að ekki boðið upp á aðra lausn í staðinn fyrir þá sem þurfa á þjónustunni að halda.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







