Lögreglan lýsir eftir lyftara

Lyftari sambærilegur þeim sem stolið var á fimmtudag.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir lyftara sem var stolið úr Kjalarvogi við Vogarbakka í Reykjavík slíðastliðinn fimmtudagsmorgun.

Um er að ræða vinnuvél af gerðinni JCB 540-70T með vinnuvélanúmerið JF-0349. Lyftarinn var innan öryggishliðs Faxaflóahafna þegar þjófurinn lét til skarar skríða. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar lyftarinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku