Lögregla leitar í Hafnarfirði

Fíkniefnalögreglan ásamt tollgæslunni gerði húsleit á verkstæði í Trönuhrauni í Hafnarfirði um hádegisbil. Lögreglumenn nutu aðstoðar tveggja fíkniefnahunda. Lagt var hald á tæki og tól en lögregla verst allra fregna af því hvers eðlis þau séu.
Verkstæðið er á bakvið hús sem hefur hýst glæpasamtökin Outlaws. Samkvæmt heimildum fréttastofu tengist húsleitin því þegar lögreglan upprætti meinta amfetamínframleiðslu í Efstasundi í Reykjavík í gærkvöld. Maðurinn sem var handtekinn er fjölskyldumaður á fimmtugsaldri.
Athugasemd ritstjóra: Þessari frétt hefur verið breytt. Í fyrri útgáfu kom fram að maðurinn tengdist Outlaws. Það mun ekki vera rétt. Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













