Loðnuveiðin orðin 225 þúsund tonn

Um 225 þúsund tonn af loðnu eru komin á land það sem af er vertíðinni. Hópur loðnuskipa er nú í Lónsbugtinni, úti fyrir Suð-Austurlandi.

Loðnan virðist vera að ganga suður með landinu og færa sig upp á grunnsævi. Það gerir hún þegar hrognafyllingin eykst í henni. Þessi fylling er núna rúmlega tólf prósent, það sýndi mæling úr afla Júpíters sem landaði á Þórshöfn í gær. Á annan tug skipa er nú í Lónsbugtinni, úti fyrir Hvalnesi og þar hafa menn verið að kasta í dag, eftir að veðrið skánaði. Skip Ísfélagsins, Þorsteinn ÞH er á leið til Vestmannaeyja með ellefu hundruð tonn af loðnu sem veiddust út af Glettinganesi.

Sigurður Rúnar Sigfússon, stýrimaður á Þorsteini, sagði í hádeginu í dag að gengið hefði ágætlega. Þeir hefðu verið með flottroll, en væru nú að sækja nót til að geta náð loðnunni nær landi. Þetta gera margir skipstjórar þessa dagana.

Heildarkvóti íslenskra skipa er um 550 þúsund tonn. Það eru 225 þúsund  komin á land það sem af er. Þorsteinn ÞH er kominn með um tólf þúsund tonn.

Sigurður Rúnar segir að loðnan sé stór og falleg. Ekki sé mikið af hrognum í henni. Sigurður býst við að vera kominn aftur á miðin í Lónsbugt  eftir hádegi á morgun.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku