Líti á flugvöllinn sem tækifæri

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hvetur borgarstjórn Reykjavíkur til að líta á Reykjavíkurflugvöll sem tækifæri til að standa undir hlutverki höfuðborgar með sóma.

Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á síðasta fundi bæjarstjórnar. Bæjarstjórnin minnir borgarstjórn Reykjavíkur á að sem höfuðborg hafi hún ákveðnum skyldum að gegna gagnvart þeim sem búa úti á landi. Verði innanlandsflug flutt til Keflavíkur myndi það valda óásættanlegri þjónustuskerðingu fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Þá bendir bæjarstjórnin á að flugvöllurinn feli einnig í sér tækifæri fyrir borgina til öflugrar uppbygginar á flugtengdri starfsemi eins og þekkist í fjölmörgum borgum í Evrópu og Ameríku.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Austurland

Tilkynna um bilaða upptöku