Lin heldur áfram að trylla NBA

Jeremy Lin heldur áfram að gera allt vitlaust í NBA deildinni í körfuknattleik

Otrúleg öskubuskusaga bakvarðarins Jeremy Lin í NBA deildinni í körfuknattleik hélt áfram í gærkvöld þegar hann skoraði 28 stig og átti 14 stoðsendingar í 104-97 sigri New York Knicks á meisturum Dallas Mavericks.

Knicks höfðu tapað síðasta leik sínum, gegn New Orleans Hornets, en sneru aftur á sigurbraun í gær og liðið hefu nú unnið alla leiki sína nema einn frá því Lin vann sér sæti í byrjunarliðinu.  Lin æðið virðist engan enda ætla að taka.  Gamanþátturinn Saturdey Night Live byrjaði að þessu sinni með atriði um Lin og á meðal áhorfenda í Madison Square Garden í gær voru Kevin Kostner, örvæntingarfulla húsmóðirin Eva Longoria og stofnandi Facebook, Mark Zuckerberg, sem útskrifaðist úr Harvardháskólanum eins og Lin. 

Önnur úrslit í NBA deildinni í gær:

Miami - Orlando 90:78
Detroit - Boston 96:81
Cleveland - Sacramento 93:92
Indiana - Charlotte 108:73
New Jersey - Milwaukee 85:92
Houston - Utah 101:85
Minnesota - Philadelphia 92:91
Oklahoma City - Denver 124:118 (frl.)
Phoenix - LA Lakers 102:90

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku