Líffæraverslun í Kósóvó-stríðinu

Hermaður Frelsishers Kósóvó 1998. Mynd: AFP.


  • Prenta
  • Senda frétt

Fyrrverandi uppreisnarmaður úr frelsisher Kósóvó hefur greint frá því að hann hafi tekið þátt í því að fjarlægja hjarta úr serbneskum fanga á meðan á Kósóvó-stríðinu stóð á tíunda áratugnum. Hjartað og fleiri líffæri sem voru fjarlægð voru svo seld á svörtum markaði.

Vladimir Vukcevic, saksóknari stríðsglæpa í Serbíu, segir vitnisburð mannsins afar áreiðanlegan, málið hafi verið rannsakað í um ár. Hann segir að líffæri hafi einnig verið fjarlægð úr Serbum sem var rænt á átakatíma. Saksóknarinn vildi ekki gefa nánari upplýsingar um málið og sagði ekkert um það hvort fólkið hafði verið myrt í þeim tilgangi að ná úr þeim líffærunum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku