Lífeyrissjóðum stefnt

Slitastjórn Kaupþings hefur stefnt Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, og nokkrum öðrum lífeyrissjóðum, og krefur þá um milljarða króna. Flest málin lúta að því, hvort lífeyrissjóðirnir hafi fengið greiðslur frá Kaupþingi of snemma, síðustu mánuði fyrir hrun.
Slitastjórn Kaupþings höfðaði tugi riftunarmála í júní, en 30. júní rann út frestur sem hún hafði til að höfða slík mál. Í fréttum hefur verið sagt frá einu slíku máli, þar sem Vestmannaeyjabæ var stefnt og bærinn krafinn um endurgreiðslu á einum milljarði króna.
Veikur grundvöllur
Slitastjórnin hefur bæði stefnt innlendum og erlendum aðilum. Riftunarmálin taka til ýmissa ráðstafana Kaupþings banka síðustu mánuði fyrir hrun. Á meðal þeirra sem slitastjórnin hefur stefnt eru nokkrir af stærstu lífeyrissjóðum landsins. Þórarinn V. Þórarinsson er lögmaður nokkurra þeirra. Hann segir að stefnurnar snúist flestar um það hvort lífeyrissjóðirnir hafi fengið greitt fyrir tímann í skilningi laga um gjaldþrotaskipti.„Og mér sýnist að slitastjórnin hafi litið svo á að hún þyrfti að senda út stefnur alls staðar þar sem einhver möguleiki væri á því að riftun myndi fást fram. Ég á hins vegar ekkert endilega von á því að öll þessi mál verði þingfest í september þegar að því kemur enda grundvöllurinn fyrir sumum stefnunum er afar veikur.“
Háar fjárhæðir
Flestir af stærstu lífeyrissjóðum landsins koma við sögu, að sögn Þórarins. Þeir hafi dreift áhættunni með þeim hætti að þeir hafi verið í viðskiptum við alla bankana. Þórarinn vill ekki að svo stöddu gefa nákvæmlega upp hvaða lífeyrissjóðum slitastjórnin hefur stefnt. Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, staðfesti hins vegar í samtali við fréttastofu í morgun, að sjóðnum hefði verið stefnt. Hann sagði að samningaviðræður stæðu yfir við slitastjórnina. Þórarinn vill ekki heldur gefa upp hversu háar upphæðir lífeyrissjóðirnir eru krafðir um endurgreiðslu á, en samkvæmt heimildum fréttastofu hlaupa þær á milljörðum króna. Samningaviðræður standa þó yfir milli slitastjórnarinnar og lífeyrissjóðanna um kröfur slitastjórnarinnar á hendur lífeyrissjóðunum. „Þetta eru háar tölur sem verið er að fjalla um í þessum samningum, það blasir við.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













