Líf og fjör í Austurbæjarskóla

Krakkarnir í Austurbæjarskóla héldu upp á öskudaginn í morgun. Nemendur og kennarar mættu í skrautlegum búningum í skólann og fóru í skrúðgöngu um gangana. Krakkarnir voru búnir að æfa upp nokkur tónlistaratriði og söngurinn ómaði um skólann.

Minna fer fyrir hefðbundnum lærdómi í skólanum þessa vikuna því á morgun er árshátíð sem krakkarnir hafa undirbúið lengi. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Mannlíf

Tilkynna um bilaða upptöku