Lesskilningur drengja slæmur

Nærri fjórðungur 15 ára drengja í reykvískum grunnskólum getur ekki lesið sér til gagns. Þetta er niðurstaða starfshóps Menntaráðs Reykjavíkurborgar sem kynnt verður í dag.

Kynjamunur í námsárangri kemur fyrst og fremst fram í lestri, læsi og ánægju af lestri, segir í skýrslu hópsins. Munurinn kemur fram þegar í öðrum bekk og helst áfram út grunnskólann. Stúlkur, sérstaklega á unglingastigi, sýna meiri einkenni kvíða en drengir.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Menntamál

Tilkynna um bilaða upptöku