Leitað að strokuunglingum

Björgunarsveitarfólk leitaði að unglingunum. Safnmynd. Landsbjörg.

Tvær björgunarsveitir á Hellu og Hvolsvelli voru kallaðar út á fjórða tímanum í nótt til að leita að fjórum unglingum sem struku af unglingaheimilinu Lækjarbakka á Rangárvöllum fyrr um nóttina.

Áður hafði lögreglan á Hvolsvelli leitað að unglingunum. Þeir fundust síðan rétt fyrir klukkan fimm heilir á húfi á veginum við Gunnarsholt þar sem höfuðstöðvar Landgræðslu ríkisins eru. Þetta kemur fram í Dagskránni fréttablaði Suðurlands.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Suðurland

Tilkynna um bilaða upptöku