Leita verður lausna segir Medvedev

Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands. Mynd:Nordic Photos/AFP

Halda verður áfram að leita leiða til að hjálpa Sýrlendingum við að binda enda á átökin í landinu, þar á meðal á vettvangi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þetta sagði Dimitri Medvedev, forseti Rússlands, í símasamtali við Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands í dag.

Rússar og Kínverjar beittu á dögunum neitunarvaldi gegn ályktunartillögu um Sýrland í öryyggisráðinu og hafa víða sætt harðri gagnrýni fyrir. Erdogan ítrekaði í samtalinu áform Tyrkja um að efna til alþjóðlegrar ráðstefnu um Sýrland. Hann segir Assad Sýrlandsforseta kominn í öngstræti og að hann verði á endanum dreginn til ábyrgðar fyrir aðgerðir hers og stjórnar gegn almennum borgurum í landinu. Erdogan fordæmdi í gær ákvörðum Rússa og Kínverja að beita neitunarvaldi í öryggisráðinu og sagði þá með því hafa gefið Assad heimild til drepa landa sína.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Asía, Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku