Leggja til víðtækari verndun

Lagt er til að stofnaður verði þjóðgarður á miðhálendinu. Mynd: Getty images

Áform um nýjar, stórar virkjanir svara ekki raunverulegri þörf á orku. Þetta er mat 13 náttúruverndarsamtaka sem í dag kynntu umsögn sína um drög að rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða.

Fjölmörg félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar hafa skilað inn umsögn um tillögu að þingsályktun um vernd og nýtingu náttúrusvæða á Íslandi. Í drögunum eru 68 vatnsafls- og jarðhitasvæði á Íslandi flokkuð í nýtingar-, bið- eða verndarflokk. Iðnaðar- og umhverfisráðherra munu á næstu dögum leggja fram þingsályktunartillögu

Þrettán náttúruverndarsamtök á Íslandi skiluðu inn sameiginlegri umsögn um tillöguna sem var kynnt á opnum fundi í Þjóðminjasafninu í dag. Hún felur í sér víðtækar breytingar. Samtökin leggja til í umsögn sinni að hægar verði farið í frekari orkuuppbyggingu með  jarðvarma og vatnsafli og fleiri svæðum hlíft en tillögudrögin gera ráð fyrir.

„Þetta eru ansi víðtækar breytingar. Við viljum í rauninni hreinsa hálendið af virkjanaframkvæmdum og fá rosalega mikið í burt,“ segir Rannveig Magnúsdóttir, ristjóri umsagnarinnar. Samtökin leggja meðal annars til að stofnaður verði þjóðgarður á miðhálendi Íslands. En sú hugmynd felur í sér að flokka þyrfti Skrokköldu og Hágöngur í verndunarflokk. Þá er lagt til að stofnaður verði eldfjallaþjóðgarður á Reykjanesskaga.

Ennfremur leggja samtökin til í umsögn sinni að Jökulsárnar í Skagafirði og náttúrusvæði í Skaftárhreppi fari í verndarflokk. „Við teljum bara að það sé ekki þörf á þessari orku. Það er bara 80% af þessari orku ætluð í stóriðju og við viljum bara ekkert meiri stóriðju, við erum með nóg fyrir okkur sjálf,“ segir Rannveig. Þá telja samtökin að frekari rannsókna á áhrifum jarðvarmavirkjana sé þörf áður en ráðist sé í fleiri virkjanir af þeirri gerð.

Samtökin telja að með verndun þeirra svæða sem þau tiltaka sérstaklega í umsögninni felist ótal tækifæri, meðal annars í sjálfbærri ferðaþjónustu. Þá ýti verndun undir aukin lífsgæði.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku