LeBron og Kobe báðir með 35 stig
Fyrst birt: 30.01.2012 10:32, Síðast uppfært: 30.01.2012 14:08

LeBron James var öflugur í gærkvöld hjá Miami Heat.
LeBron James og Kobe Bryant voru báðir sjóðheitir í gærkvöld og skoruðu 35 stig hvor fyrir lið sín í NBA körfuboltanum. LeBron James fór fyrir Miami Heat sem sigraði Chicago Bulls 97-93 og Kobe Bryant var aðal maðurinn þegar Los Angeles Lakers hafði betur gegn Minnesota Timberwolves, 106-101.
Önnur úrslit gærkvöldsins urðu þessi:
Boston Celtics - Cleveland Cavaliers 87-88
Orlando Magic - Indiana Pacers 85-106
Denver Nuggets - Los Angeles Clippers 105-109
New Jersey Nets - Toronto Raptors 73-94
New Orleans Hornets - Atlanta Hawks 72-94
Dallas Mavericks - San Antonio Spurs 101-100 (eftir framlengingu).
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







