Lawrie vann Qatar-meistaramótið

Paul Lawrie að móti loknu í Qatar í dag

Skotinn Paul Lawrie vann Qatar-meistaramótið í golfi sem lauk í dag en mótið tilheyrir Evrópumótaröðinni. Lawrie fær rúmlega 52 milljónir króna í verðlaunafé.

Lawrie lék lokahringinn í dag á 65 höggum eða sjö höggum undir pari og lauk leik á samtals fimmtán höggum undir pari, fjórum höggum á undan Jason Day frá Ástralíu og Svíanum Peter Hanson sem urðu jafnir í öðru sæti á samtals ellefu höggum undir pari.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Golf, Íþróttir

Tilkynna um bilaða upptöku