Laumufarþegar
Fyrst birt: 10.02.2012 07:29, Síðast uppfært: 10.02.2012 08:27

Mynd af vef Eimskips.
Lögreglan handtók upp úr miðnætti tvo menn sem höfðu verið stöðvaðir við að reyna að komast um borð í skip í Sundahöfn í Reykjavík. Þeir eru hælisleitendur hér á landi og voru að reyna að komast sem laumufarþegar til Kanada.
Annar mannanna er frá Súdan og hinn frá Alsír. Þeir hafa áður reynt að komast um borð. Í fyrra skiptið báðir þann 7. janúar, en Alsírbúinn reyndi aftur einn þann 13. janúar. Þeir eru nú í haldi og verða yfirheyrðir í dag.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







