Landrækur vegna guðlasts

Yfirvöld í Malasíu hafa vísað blaðamanni frá Sádí-Arabíu úr landi vegna þess að hann talaði óvirðulega um Múhammeð spámann á Twitter.

Hamza Kashgari birti í síðustu viku, á fæðingardegi spámannsins, efasemdir um boðskap Múhammeðs. Í færslunni stóð að Kashgari elskaði og hataði spámanninn. Það væri margt sem hann ekki skildi og hann ætlaði ekki að biðja fyrir spámanninum.  Tugir þúsunda brugðust illa við birtingunni, og Kashgari var hótað lífláti. Guðlast er dauðasök í Sádi-Arabíu og mannrétttindasamtök óttast um líf Kashgaris. Hann baðst afsökunar og afmáði færsluna í síðustu viku. Hótunum linnti ekki og hann flúði frá Sádi- Arabíu.  Á fimmtudaginn var Kashgari handtekinn á flugvellinum í Kuala Lumpur. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Asía, Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku