Landeigendur ósáttir

Mynd:Shutterstock
Mikil óánægja er meðal landeigenda um nýtt frumvarp til náttúruverndarlaga og drög að nýjum jarða- og ábúðarlögum. Þetta kom fram á fundi Landssamtaka landeigenda um helgina þar sem stjórnvöld voru harðlega gagnrýnd.
Heitar umræður spunnust um drög að nýjum jarða- og ábúðarlögum, nýtt frumvarp til náttúruverndarlaga og frumvarp um veiðar á villtum fuglum og spendýrum á aðalfundi Landssamtaka landeiganda um helgina. Örn Bergsson, formaður samtakanna, segir að landeigendur muni berjast hart gegn þessum lagafrumvörpum en hann gagnrýndi umhverfisráðuneytið harðlega á fundinum fyrir að vera endalaust að undirbúa laga- og reglugerðarbreytingar sem miða að því að allir skapaðir hlutir verði bannaðir eða háðir leyfisveitingum.
Örn segir að jarðalögin séu afturhvarf til fortíðar og forræðishyggju. Landeigendur séu ekki heldur sáttir við fyrirhugaðar breytingar á náttúrverndarlögum þar sem hlunnindanýting yrði gerð leyfisskyld. Verið að skerða umferðarrétt landeiganda um sitt eigið land og menn þurfi leyfi til þess að fara um eigið land. Þetta sé eingöngu gert til þess að skaffa einhverju liði í 101 Reykjavík vinnu við að fletta einhverjum möppum.
Heimasíða Landssamtaka landeigenda.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







