Kleifarbergið var við veiðar í Barentshafi í tæpan mánuð en mjög góð veiðið hefur verið þar að undanförnu. Sæmundur Árnason, skipstjóri á Kleifarberginu, segir með ólíkindum hvað það veiðist vel á svæðinu. Hann segir að skipverjar haldi aftur úr höfn á sunnudagsmorgun.
Til samanburðar má geta þess að á síðasta ári var heildarafli Kleifarbergsins 5147 tonn. Sæmundur segir að nægur fiskur sé í Barentshafinu.
frettir@ruv.is