Læknar ekki beggja megin borðs

Enginn þeirra lækna sem verða fengnir til að fjarlægja PIP púða úr brjóstum kvenna á Landspítalanum mun vinna að því á einkastofu að setja nýja púða í brjóst kvennanna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Önnu Sigrúnu Baldursdóttur, aðstoðarmanni velferðarráðherra.

Hún svarar þar orðum Sögu Ýrar Jónsdóttur, lögmanns kvenna með PIP púða. Saga Ýr sagði í Samfélaginu í nærmynd og kvöldfréttum útvarps að það væri rangt hjá ráðherra að aðeins læknar sem ekki væru með einkastofurekstur myndu vinna að því að fjarlægja púðana. Hún nefndi nokkra lækna sem væru með einkarekstur og sagði að sama hversu oft hún skoðaði yfirlýsingu ráðuneytisins vöknuðu alltaf spurningar um framkvæmdina

Þetta segir Anna Sigrún rangt. Tveir af fjórum lýtalæknum spítalans vinni aðeins á spítalanum og séu ekki með einkastofu. Sá þriðji sé hjá spítalanum í 60 prósenta starfi en muni ekki sinna þeim konum á einkastofu sinni sem fá þjónustu Landspítala. Fjórði læknirinn sé í tuttugu prósenta starfi hjá spítalanum og komi ekki að neinu leyti að því að fjarlægja PIP púða úr brjóstum kvenna.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku