Kviknaði í útfrá grilli



  • Prenta
  • Senda frétt

Fimm rúður sprungu í íbúðarhúsi í Garði og bifreið skemmdist vegna hita þegar kviknaði í vörubrettum við húsið. Húsráðandi hafði ætlað að grilla á einnota grilli en lent í basli að því er segir í tilkynningu lögreglu.

Hann hætti við eldamennskuna og lagði grillið á vörubretti. Ekki fór betur en svo að þar gaus upp eldur. Nágrannar voru að ljúka við að slökkva þegar slökkvilið kom á vettvang. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku