Kurr meðal kröfuhafanna í Byr

Stofnfjárhafar í Byr-sparisjóði eru hneykslaðir á ákvörðun stjórnar Byrs að fela fyrirtæki með tengsl við formann slitastjórnar bankans að annast sölu á fyrirtækinu. Kurr er meðal stærstu kröfuhafanna vegna þessa.

Svokallað „rafrænt gagnaherbergi“ var í dag opnað fyrir áhugasama kaupendur að nýju hlutafé Byrs. Heimildir herma að listi áhugasamra sé nokkuð langur. Allir stóru viðskiptabankarnir séu þeirra á meðal. Stjórn Byrs hefur falið ráðgjafafyrirtækinu Arctica Finance að annast söluna. Fyrirtækið stofnuðu fyrrverandi starfsmenn Landsbankans. Það fékk ríflega 100 milljónir króna fyrir ráðgjöf vegna umdeildrar sölu Orkuveitu Reykjavíkur á hlut sínum í HS Orku til Magma Energy á sínum tíma. Framkvæmdastjóri Arctica og einn stofnendanna er eiginmaður Evu Bryndísar Helgadóttur, formanns slitastjórnar Byrs, sem fer með 94 prósenta hlut í bankanum. Þá situr Ástraður Haraldsson í stjórn Arctica. Hann er félagi Evu Bryndísar á lögmannsstofunni Mandat, og svo er Bjarni Þórður Bjarnason, fyrrverandi forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans stjórnarformaður, en hann er móðurbróðir Evu Bryndísar. Reiknað er með að þóknunin fyrir að selja Byr geti numið allt að 150 milljónum króna.

Samkvæmt heimildum fréttastofu er töluverður kurr í kröfuhafahópnum vegna ráðstöfunarinnar. Þeirra á meðal eru erlendir bankar sem eru meðal stærstu kröfuhafa. Stofnfjárhafar sem lýstu hundruðum krafna í þrotabúið eru hneykslaðir. Guðjón Jónsson, stjórnarmaður í Samtökum stofnfjárhafa í Byr, staðfestir það.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Viðskipti

Tilkynna um bilaða upptöku