Kröfu Keflvíkinga hafnað

Aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambands Íslands skilaði í dag niðurstöðu í máli sem kom upp í kjölfar viðureignar Keflavíkur og Njarðvíkur í 8-liða úrslitum bikarkeppni kvenna, 23. janúar. Keflavík kærði framkvæmd leiksins og fór fram á að leikurinn yrði endurtekinn. Því var hafnað.
Uppruni kærunnar er sá að Keflvíkingar kærðu úrslit leiksins, sem urðu 78-72 fyrir Njarðvík. Keflvíkingar telja að ritari leiksins hafi upp á sitt einsdæmi bætt við liðsvillu inn á leikskýrslu án samþykkis og vitundar dómara þegar innan við mínútu var eftir af leiknum og það hafi haft áhrif á úrslit leiksins. Því vildu Keflvíkingar að leikurinn yrði endurtekinn. Því hefur nú verið hafnað.
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur þó fimm virka daga til að áfrýja dómnum og því enn tvísýnt hvort bikarúrslitaleikur kvenna fari fram í Laugardalshöll laugardaginn 18. febrúar, sama dag og úrslitaleikur Keflavíkur og Tindastóls í karlaflokki.
Úrskurð aganefndar má finna í heild sinni hér.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







